17.05.15 - 07:30
Magnús Már Einarsson
Craig Rodgers og Sveinn Leó í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Sveinn Leó Bogason spilar með Dalvík/Reyni í sumar.

Mynd: Dalvík/Reynir

Dalvík/Reynir fékk varnarmanninn Craig Rodgers í sínar raðir áður en félagskiptaglugginn lokaði í fyrradag.
Craig var á reynslu hjá Þór í síðustu viku en hann endaði á að semja við Dalvík/Reyni.
Craig er 25 ára gamall en hann getur spilað bæði í miðverði og í vinstri bakverði.
Í vetur spilaði hann með Warrington Town í ensku utandeildinni en liðið vakti athygli fyrir góða frammistöðu í enska bikarnum. Warrington vann þar sex leiki og sló meðal annars út D-deildarlið Exeter.
Craig hefur einnig spilað í Bandaríkjunum sem og með Vauxhall Motors á Englandi.
Dalvík/Reynir fékk einnig markvörðinn Svein Leó Bogason í sínar raðir áður en glugginn lokaði en hann hefur áður leikið með Dalvík/Reyni.
Bæði Craig og Sveinn Leó spiluðu með Dalvík/Reyni í 4-0 tapi gegn Leikni Fáskrúðsfirði í gær.