17.05.15 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Hvíti Riddarinn fær Englending og fjóra aðra (Staðfest)

Birgir Freyr Ragnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Axel Lárusson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birgir Freyr Ragnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvíti Riddarinn hefur fengið til liðs við sig þá Axel Lárusson, Birgir Freyr Ragnarsson, Sam Downey, Arnór Theódórsson og Aron Elfar Jónsson fyrir átökin í 4.deildinni í sumar.
Axel Lárusson er uppalinn Mosfellingur en hann spilaði á síðasta tímabili 6 leiki með HK í 1.deildinni, þar áður hafði hann verið fastamaður í liði Aftureldingar í 2.deild undanfarin ár.
Birgir Freyr Ragnarsson hefur verið fyrirliði Aftureldingar síðustu ár en vegna anna þá sá hann sér ekki fært að taka slaginn með liðinu í 2.deild og því hefur hann skipt yfir í Hvíta Riddarann og kemur til með að spila í 4.deildinni í sumar.
Sam Downey er 21 árs miðju- og varnarmaður frá Englandi. Downey kemur úr knattspyurnuakademíu Lincoln City en hann varð yngsti fyrirliði varaliðs Lincoln City frá upphafi þá aðeins 16 ára að aldri.
Síðan þá hefur Downey spilað með sænska 3.deildar liðinu IFK Holmsund og 2.deildarliði Boden BK.
Hjá Holmsund var Downey valinn leikmaður ársins hjá félaginu og einnig í vali stuðningsmanna. Skoraði hann 12 mörk í 24 leikjum og var með 9 stoðsendingar í sænsku 3.deildinni.
Downey kemur til Hvíta Riddarans frá breska háskólaliðinu Loughborough University þar sem hann hefur verið að leggja lokahönd á nám sitt. Loughborough University er talinn sterkasti skólinn í háskólaboltanum í Bretlandi.
Arnór Theódórsson kemur til Hvíta Riddarans frá Aftureldingu þar sem hann spilaði 20 leiki í bæði deild og bikar á síðasta tímabili. Arnór er sonur Theódórs Sveinjónssonar þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu.
Aron Elfar Jónsson snýr þá aftur til félagsins en hann var fyrirliði liðsins síðustu tvö sumur en hann skipti yfir í Aftureldingu um mitt síðasta sumar og hjálpaði Aftureldingu í baráttunni í 2.deild það sumar.