Fotbolti.net
17.06.15 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Gattuso stýrir Novara í B-deildinni (Staðfest)

Gattuso var um tíma blindur á öðru auga.

Gattuso var um tíma blindur á öðru auga.

Canon

Mynd: Getty Images

Gennaro Ivan Gattuso er tekinn við Novara í ítölsku B-deildinni og verður því ekki aðstoðarmaður Sinisa Mihajlovic hjá AC Milan eins og búist var við.

Novara er ný komið upp í B-deildina og er fjórða liðið sem Gattuso stýrir á þjálfaraferli sínum.
Gattuso byrjaði á því að vera spilandi stjóri Sion í Sviss, svo tók hann við Palermo og OFI Crete og var síðast aðstoðarþjálfari hjá Milan.

Gattuso er búinn að skrifa undir eins árs samning við Novara en hann á enn eftir að sanna gildi sitt sem þjálfari þar sem hann var rekinn frá bæði Sion og Palermo og gekk svo úr starfi hjá OFI Crete sem átti í gífurlegum fjárhagsvandræðum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.