17.06.15 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Iraola gengur til liðs við David Villa í New York (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Hægri bakvörðurinn Andoni Iraola er genginn til liðs við New York City FC, systurfélags Manchester City í bandarísku MLS deildinni.
Iraola gengur til liðs við samlanda sinn David Villa sem hefur skorað fjögur mörk í 12 deildarleikjum fyrir félagið.
Iraola gengur til liðs við samlanda sinn David Villa sem hefur skorað fjögur mörk í 12 deildarleikjum fyrir félagið.
Iraola á sjö landsleiki að baki fyrir spænska landsliðið og er 32 ára gamall. Allan sinn feril hefur Iraola leikið fyrir Athletic Bilbao og er hann stoltur Baski.
Iraola kemur á frjálsri sölu enda samningur hans við Athletic runninn út og binda stjórnendur New York miklar vonir við þennan þaulreynda og áreiðanlega bakvörð.
Iraola kemur á frjálsri sölu enda samningur hans við Athletic runninn út og binda stjórnendur New York miklar vonir við þennan þaulreynda og áreiðanlega bakvörð.
