17.06.15 - 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Josip Drmic til Mönchengladbach (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Borrusia Mönchengladbach er búið að staðfesta kaupin á svissneska sóknarmanninum Josip Drmic frá Bayer Leverkusen.
Drmic er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við M\'Gladbach sem endaði í 3. sæti þýsku deildarinnar á síðasta tímabili, fimm stigum fyrir ofan Leverkusen sem endaði í 4. sæti.

Drmic skoraði sex mörk í 19 leikjum fyrir Leverkusen á síðasta tímabili og hefur auk þess leikið 20 landsleiki fyrir Sviss og skorað fimm mörk.
Drmic er 22 ára gamall og var greint frá kaupunum á Twitter síðu M\'Gladbach. Kaupverðið er óljóst en talið nema um 10 milljónum evra.