17.06.15 - 12:30
Ívan Guðjón Baldursson
Micah Richards til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Micah Richards er búinn að standast læknisskoðun hjá Aston Villa og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.
Richards kemur frítt til félagsins og er fyrsti leikmaðurinn sem Tim Sherwood fær til sín hjá Villa.

Richards hefur fengið loforð um að spila í uppáhaldsstöðunni sinni, miðverði, en ekki hægri bakverði eins og oft áður.
Richards var á láni hjá Fiorentina á síðasta tímabili og voru bæði Everton og West Ham á eftir honum en að lokum var það loforðið um miðvarðarstöðuna sem gerði útslagið, samkvæmt The Guardian.

Heimild: Guardian