Fotbolti.net
17.06.15 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson

Simon Kjær er kominn til Fenerbahce (Staðfest)

Simon Kjær er kominn til Fenerbahce (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Danski miðvörðurinn Simon Kjær er kominn til Fenerbahce eftir að hafa verið leikmaður Lille í Frakklandi tvö síðustu tímabil.

Kaupverðið er talið nema um 10 milljónum evra og fær Kjær 4 milljónir evra í árslaun hjá tyrkneska félaginu.
Kjær er aðeins 26 ára gamall og hóf ferilinn hjá Midtjylland og gerði garðinn frægan hjá Palermo í ítölsku deildinni.

Eftir tvö tímabil hjá Palermo fór Kjær til Wolfsburg þar sem hann var lánaður til Roma í eitt tímabil og seldur til Lille eftir þriggja ára veru.

Kjær hefur verið tíður byrjunarliðsmaður hjá öllum þessum liðum og á 50 landsleiki að baki fyrir Dani.

Heimild: Ekstrabladet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.