Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 17. júlí 2021 21:40
Victor Pálsson
Saul með marga möguleika samkvæmt umboðsmanni
Mynd: Getty Images
Joshua Barnett, umboðsmaður Saul, segir að skjólstæðingur sinn sé með marga möguleika í þessum sumarglugga.

Saul er orðaður við stórlið Barcelona en talað er um að Barcelona gæti skipt á miðjumanninum og Antoine Griezmann.

Saul hefur spilað yfir 300 leiki fyrir Atletico á ferlinum en hann á enn fimm ár eftir af samningi sínum á Wande Metropolitano.

„Saul mun gera það sem er best fyrir Saul. Engin ákvörðun hefur verið tekin. Hann er með marga möguleika, bæði í að fara og að vera áfram," sagði Barnett.

Talið er að Barcelona sé eini líklegi áfangastaður Saul sem er þó einnig sagður vera undir smásjá Bayern Munchen.

Atletico hefur nú þegar bætt við sig miðjumanni en Rodrigo de Paul kom frá Udinese fyrr í sumar.
Athugasemdir
banner
banner