Fotbolti.net
17.08.19 - 18:12
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild: Víðir í þriðja sæti eftir sigur á Húsavík

Helgi skoraði tvennu.

Helgi skoraði tvennu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Völsungur 1 - 3 Víðir
0-1 Helgi Þór Jónsson ('36)
0-2 Helgi Þór Jónsson ('70)
1-2 Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('79)
1-3 Ari Steinn Guðmundsson ('89)
Víðir er að blanda sér í toppbaráttu 2. deildar með sínum þriðja sigri í röð. Í dag höfðu Víðismenn betur gegn Völsungi á Húsavík.

Helgi Þór Jónsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks og bætti öðru við í þeim síðari.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson minnkaði muninn fyrir heimamenn en Ari Steinn Guðmundsson innsiglaði sigur Víðis á lokakaflanum.

Víðir er í þriðja sæti eftir sigurinn, þremur stigum eftir toppliði Leiknis F.

Völsungur er í fallbaráttu, sex stigum frá fallsæti þegar sex umferðir eru eftir.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfæra sig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.