19.08.26 - 10:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Piroe til West Ham (Staðfest) - Leeds gæti fengið 12 milljónir

Mynd: West Ham

Mynd: West Ham
Joel Piroe er genginn í raðir West Ham á láni frá Leeds. Í lánssamningnum er kaupskylda sem virkjast sjálfkrafa ef West Ham kemst upp úr Championship deildinni í vetur.
Alls getur Leeds fengið 12 milljónir punda fyrir Piroe ef horft er í lánsfé og kaupákvæðið.
Hamrarnir virðast hafa misst af Troy Parrott sem er á leið til Real Betis og horfðu því til annars framherja.

Piroe fékk ekki margar mínútur á síðasta tímabili, byrjaði einungis tvo leiki. En hann hefur skorað 73 mörk í 179 leikjum í Championship deildinni. Hann vonast líklega til að halda áfram að skora í næstefstu deild.
Piroe er 27 ára Hollendingur sem á landsleik fyrir Súrinam. Hann verður í treyju númer níu. Hann hefur spilað með Swansea og Leeds í Championship deildinni.
Piroe er 27 ára Hollendingur sem á landsleik fyrir Súrinam. Hann verður í treyju númer níu. Hann hefur spilað með Swansea og Leeds í Championship deildinni.