Fotbolti.net
19.08.26 - 10:46
Elvar Geir Magnússon

Arsenal að nálgast kaup á Konsa

Ezri Konsa og Declan Rice í leik með enska landsliðinu.

Ezri Konsa og Declan Rice í leik með enska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Varnarmaðurinn Ezri Konsa er að nálgast sölu frá Aston Villa til Arsenal. Englandsmeistararnir vilja bæta við sig varnarmanni en William Saliba og Jurrien Timber eru á meiðslalistanum.

Konsa getur bæði leikið sem miðvörður og hægri bakvörður og hefur verið orðaður við Arsenal í allt sumar.

Konsa mætti til æfinga hjá Villa á mánudag eftir að hafa fengið frí eftir þátttöku með enska landsliðinu á HM. Konsa á tvö ár eftir af samningi sínum við Villa.

Hann spilaði 48 leiki í öllum keppnum síðasta tímabil þegar Villa vann Evrópudeildina og endaði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar. Hann hefur spilað 286 leiki fyrir félagið síðan hann kom frá Brentford árið 2019.
Arsenal í viðræðum um annan varnarmann enska landsliðsins
TENGT EFNI

Arsenal í viðræðum um annan varnarmann enska landsliðsins

Athletic greindi frá því á föstudag að Arsenal hefði einnig áhuga á varnarmanninum Jarell Quansah hjá Bayer Leverkusen.
Arsenal að nálgast kaup á Konsa
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.