Hugo Lloris, markvörður og fyrirliði Tottenham, fór í viðtal ásamt Lucas Moura eftir 2-2 jafntefli gegn Manchester City í dag.
Gabriel Jesus kom knettinum í netið í uppbótartíma en markið ekki dæmt gilt því boltinn hafði viðkomu í hendi Aymeric Laporte í aðdragandanum.
„Ég hélt að þetta væri löglegt mark. Þetta er smá óheppni hjá City en við erum mjög ánægðir með stigið," sagði Lloris og tók Lucas undir.
„Þetta var klikkað. Ég hélt að leikurinn væri búinn þegar boltinn fór í netið. Þetta er eitthvað sem bara VAR getur séð og ég þakka fyrir það.
„Mér fannst við spila mjög vel, við náðum í góð úrslit á ótrúlega erfiðum útivelli."
Athugasemdir