Fotbolti.net
17.08.26 - 11:10
Kári Snorrason

Jón Daði leggur skóna á hilluna

Leggur skóna á hilluna 34 ára gamall.

Leggur skóna á hilluna 34 ára gamall.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Daði Böðvarsson hefur lagt skóna á hilluna. Jón, sem er 34 ára, rifti á laugardaginn samningi sínum við Selfoss.

Hann greinir frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlinum Instagram.
Jón Daði riftir við Selfoss (Staðfest)
TENGT EFNI

Jón Daði riftir við Selfoss (Staðfest)

Jón Daði var lykilmaður í gullkynslóð Íslands og lék hann með liðinu á bæði HM og EM. Hann á að baki 64 landsleiki og skoraði í þeim fjögur mörk.

Hann hóf ferilinn með uppeldisfélaginu Selfossi og var seldur út til Viking Stavanger í Noregi. Þaðan fór hann til Kaiserslautern í Þýskalandi árið 2016 og var þar í hálft ár.

Frá Þýskalandi fór hann til Englands og lék hann þar í landi í tæpan áratug með Wolves, Reading, Millwall, Bolton, Wrexham og Burton.

Jón hélt heim síðasta sumar og gekk til liðs við Selfoss. Liðið féll úr Lengjudeildinni og tók hann slaginn með liðinu áfram í 2. deild. Hann lék tíu leiki með liðinu í deild í sumar og skoraði þrjú mörk.

Fyrr í sumar greindi Fótbolti.net frá atviki þar sem Jón var rekinn heim af æfingu liðsins og var hann í kjölfarið ekki í leikmannahóp liðsins í næstu tveimur leikjum á eftir.

Á laugardaginn var komst Jón og Selfoss að samkomulagi um að rifta samningi hans og stóð í tilkynningu félagsins að um sameiginlega ákvörðun væri að ræða.

Færsla Jóns í heild sinni:
Góðir hlutir taka enda. Ég hef ákveðið að hætta í leiknum sem ég elska. Leiknum sem ég hef elskað frá því ég var sex ára gamall, þegar ég horfði á tíundu bekkinga spila og sá leikinn og sá leikinn með eigin augum.

Stundum velti ég því fyrir mér hversu heppinn ég var að fá að lifa drauminn minn. Þetta var tilfinningarússíbani mótlætið og árangurinn sem fylgdi þessu ferðalagi. En þegar upp er staðið sit ég eftir með ekkert nema þakklæti.

Ég vil þakka öllum stjórum, þjálfurum, leikmönnum og starfsfólki sem ég hef verið svo heppinn að kynnast og starfa með. Það var frábært að deila með ykkur bæði hæstu og lægstu punktum fótboltans.

Ég vil einnig þakka öllum stuðningsmönnum þeirra frábæru félaga sem ég hef leikið fyrir á ferlinum. Án ykkar væri leikurinn ekki sá sami. Ég vildi alltaf sýna mínar bestu hliðar á vellinum svo þið gætuð yfirgefið völlinn með bros á vör. Ég vona að mér hafi tekist það.

Að lokum, vil ég þakka fallegu eiginkonunni minni. Þær fórnir sem þú hefur fært til að styðja mig í gegnum þetta ferðalag eru ómetanlegar. Þú hefur verið kletturinn minn á erfiðum tímum og minn stærsti stuðningsmaður. Og besta móðir sem börnin okkar hefðu getað óskað sér.

Takk fyrir allt.
JDB


Fagnar marki sínu gegn Austurríki á EM.

Fagnar marki sínu gegn Austurríki á EM.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á að baki 64 landsleiki.

Á að baki 64 landsleiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lykilmaður í gullkynslóð Íslands.

Lykilmaður í gullkynslóð Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Spilaði í tæpan áratug í Englandi.

Spilaði í tæpan áratug í Englandi.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.