Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 17. október 2021 22:40
Victor Pálsson
Mögnuð tölfræði Ronaldo - Skorað gegn 119 liðum
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, hefur skorað gegn 119 mismunandi liðum á ferlinum en þetta kemur fram í skemmtilegri grein Goal.com.

Þar er farið ítarlega yfir tölfræði Portúgalans sem gekk aftur í raðir Man Utd í sumar eftir að hafa yfirgefið félagið árið 2009.

Ronaldo hefur samtals skorað gegn 119 liðum á knattspyrnuferlinum og í Evrópukeppnum eru flest þeirra skoruð gegn þýsku liði.

Ronaldo hefur skorað 28 mörk gegn þýskum liðum og þar á eftir koma lið frá Ítalíu (18) og svo lið frá Frakklandi (18).

Ef tekið er tölfræði frá 2. Október þá hefur Ronaldo skorað 87 mörk í ensku úrvalsdeildinni og skorað gegn 24 mismunandi liðum í þeirri deild.

Flest mörk Ronaldo hafa komið gegn Aston Villa eða átta talsins. Með landsliðinu hefur Ronaldo skorað gegn 46 mismunandi liðum en hann er markahæsti landsliðsmaður frá upphafi.

Þessa grein má lesa í heild sinni hér

Athugasemdir
banner
banner