17.10.26 - 11:32
Brynjar Ingi Erluson
Arteta segir hópuppsögnina lið í því að ná betri árangri

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur tjáð sig um fyrirhugaða hópuppsögn hjá félaginu og segir hana lið í því að bæta starfsemina og ná enn betri árangri.

TENGT EFNI
Arsenal segir upp 60 manns
Á dögunum var greint frá því að Arsenal hygðist segja upp 60 starfsmönnum þrátt fyrir mettekjur á síðasta ári og frábært gengi liðsins á vellinum.
Félagið ætlar að fækka störfum á ákveðnum sviðum, en uppsagnirnar munu ekki ná til þeirra sem starfa við afreksmál karla- og kvennaliðsins, samfélagsverkefni á vegum Arsenal Foundation eða öryggismál.
Málið er enn í vinnslu og áformin gætu tekið breytingum, en Arteta var spurður út í fyrirhugaðar uppsagnir á fréttamannafundi.
„Mér var útskýrt að þetta væri gert til að félagið gæti haldið áfram að þróast og bæta sig. Stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir til að tryggja að rétta fólkið sé í réttum hlutverkum og að við getum haldið áfram að fjárfesta í því sem þarf til að ná þeim árangri sem við stefnum að,“ sagði Arteta.
Fréttirnar um uppsagnirnar koma aðeins nokkrum dögum eftir að Arteta framlengdi samning sinn við Arsenal og fékk um leið væna launahækkun, en hann er nú launahæsti stjóri ensku úrvalsdeildarinnar með um 20 milljónir punda í árslaun.