Fotbolti.net
17.10.26 - 11:16
Brynjar Ingi Erluson

Duncan Ferguson að snúa aftur í þjálfun

Duncan Ferguson ásamt Wayne Rooney

Duncan Ferguson ásamt Wayne Rooney

Canon

Mynd: Twitter

Skoski þjálfarinn Duncan Ferguson er að snúa aftur á hliðarlínuna eftir tveggja ára fjarveru, en hann er að taka við Glentoran í Norður-Írlandi.
Ferguson varð að goðsögn hjá Everton á sínum leikmannaferli, en hann lék lengst af með félaginu auk þess að hafa spilað með Rangers, Dundee United og Newcastle United.

Eftir að skórnir fóru á hilluna hefur hann meðal annars tvisvar sinnt starfi bráðabirgðastjóra Everton og verið í þjálfarateymi þeirra Carlo Ancelotti, Rafael Benítez og Frank Lampard áður en hann yfirgaf félagið sumarið 2022.

Hann tók síðar við Forest Green Rovers, þar sem hann var við stjórnvölinn í hálft ár og féll með liðinu úr deildinni, áður en hann hélt til Skotlands og tók við Inverness Caledonian Thistle. Þar starfaði hann í eitt ár þar til félagið var sett í greiðslustöðvun.

Nú er Ferguson hins vegar á leið aftur í þjálfun, en samkvæmt Belfast Telegraph mun hann taka við Glentoran sem leikur í efstu deild Norður-Írlands.

Glentoran situr í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig eftir ellefu umferðir og er fjórtán stigum á eftir toppliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.