Fotbolti.net
17.10.26 - 13:08
Sverrir Örn Einarsson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Þórs og Stjörnunar: Þór breytir ekki sigurliði - Fjórir víkja hjá Stjörnunni

Ásbjörn Líndal átti góðan leik gegn ÍBV og er á sínum stað í vörn Þórs í dag.

Ásbjörn Líndal átti góðan leik gegn ÍBV og er á sínum stað í vörn Þórs í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór tekur á móti Stjörnunni á VÍS vellinum á Akureyri í dag en flautað verður til leiks klukkan 14. Þór er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni og má alls ekki við því að tapa stigum á meðan að Stjarnan siglir lygnan sjó og hefur að engu öðru að keppa en stolti. Þjálfarar beggja liða hafa nú opinberað byrjunarlið sín og má sjá þau hér að neðan.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 0 Stjarnan
Hjá Þór er Sigurður Heiðar Höskuldsson ekki að breyta sigurliði og teflir fram sama byrjunarliði og bar 1-0 sigurorð af ÍBV í síðustu umferð.

Stjarnan gerir fjórar breytingar á sínu liði frá tapinu gegn KA á dögunum. Sindri Þór Ingimarsson, Ibrahim Turay og Christian Bjarmi Alexandersson fá sér sæti á bekknum auk þess að Benedikt Warén tekur út leikbann. Inn í liðið í þeirra stað koma þeir Ari Leifsson, Jóhann Árni Gunnarsson, Sigurður Gunnar Jónsson og Alex Þór Hauksson.

Byrjunarlið Þór

  • 1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
  • 2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
  • 6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
  • 8. Einar Freyr Halldórsson
  • 15. Kristófer Kristjánsson
  • 16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
  • 18. Sverrir Páll Ingason
  • 22. Ágúst Eðvald Hlynsson
  • 23. Kevin Vazquez Comesaña
  • 25. Christian Jakobsen
  • 35. Þorri Ingólfsson

Byrjunarlið Stjarnan

  • 12. Árni Snær Ólafsson (m)
  • 3. Gustav Kjeldsen
  • 7. Örvar Eggertsson
  • 8. Jóhann Árni Gunnarsson
  • 11. Birnir Snær Ingason
  • 14. Bjarki Hauksson
  • 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
  • 19. Ari Leifsson
  • 22. Emil Atlason (f)
  • 24. Sigurður Gunnar Jónsson
  • 29. Alex Þór Hauksson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.