Fotbolti.net
17.10.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Skráning hafin fyrir árgangamót Keflavíkur

Skráning hafin fyrir árgangamót Keflavíkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árgangamót Keflavíkur verður haldið laugardaginn 7. nóvember í Reykjaneshöll. Eftir mótið tekur lokahóf Keflavíkur við.
Þar verður skemmtun með Emmsjé Gauta og ball í Bluehöllinni þar sem Bókaúðarbandið leikur fyrir dansi. Skráning er hafin á sérstakri vefsíðu og stendur til 1. nóvember.

„Mótið gefur Keflvíkingum tækifæri til að sameinast með árgangsfélögum sínum, rifja upp gamla takta á fótboltavellinum og eiga skemmtilegan dag saman. Margir árgangar hafa þegar safnað saman stórum hópum og stefnir í líflegt mót," segir meðal annars í tilkynningu frá Keflavík.

„Keppt verður í karla- og kvennaflokki, fimm á móti fimm með frjálsum skiptingum. Mæting í Reykjaneshöll er kl. 12:00 og keppni hefst kl. 12:30. Þátttakendur skrá sig í sinn árgang á argangur.is með rafrænum skilríkjum. Aldurstakmark er 25 ár og verður árgangurinn 2001 boðinn velkominn í fyrsta sinn í ár.

„Húsið opnar fyrir lokahóf og kvöldskemmtun kl. 19:00. Emmsjé Gauti sér um veislustjórn og tónlist. Ekki verður þjónað til borðs, en Barna- og unglingaráð verður með pizzur til sölu á vægu verði.

„Kl. 23:00 opnar Bluehöllin fyrir ballgesti og Bókabúðarbandið með Marínu Þórólfs í fararbroddi heldur uppi fjörinu. Gestir þurfa ekki að taka þátt í fótboltamótinu til að mæta á ballið.

„Leikmenn í efstu deild eru ekki gjaldgengir í fótboltamótið en eru að sjálfsögðu velkomnir á kvöldskemmtunina."


Miðaverð er eftirfarandi:
Mótið eingöngu: 5.900 kr.
Ballið eingöngu, aðgangur frá kl. 23:00: 6.900 kr.
Allur pakkinn: Mót, lokahóf, skemmtun og ball: 9.900 kr.

Skráning hafin fyrir árgangamót Keflavíkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skráning hafin fyrir árgangamót Keflavíkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.