Fotbolti.net
17.10.26 - 21:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Róteraðir Rómverjar ekki í vandræðum gegn Mikael Agli

Ítalía: Róteraðir Rómverjar ekki í vandræðum gegn Mikael Agli
Canon

Mynd: EPA

Roma 2 - 0 Genoa
1-0 Santiago Castro ('50 )
2-0 Emanuele Lulli ('68 )
Gian Piero Gasperini þjálfari AS Roma gerði talsverðar breytingar á byrjunarliði sínu til að hvíla lykilmenn í dag.

Rómverjar töpuðu eftir magnaðan slag gegn Real Madrid í miðri viku og var ekki mikið bensín eftir á tankinum hjá leikmönnum, svo Gasperini ákvað að gera sjö breytingar á milli leikja.

Roma mætti því til leiks með hálfgert varalið í dag, en Mikael Egill Ellertsson og félagar í liði Genoa réðu þrátt fyrir það ekki við stórveldið.

Staðan var markalaus þar til í upphafi síðari hálfleiks þegar Santiago Castro skoraði magnað mark eftir hornspyrnu. Boltinn datt fyrir Argentínumanninn sem vippaði honum afar skemmtilega yfir markvörð Genoa úr verulega erfiðu færi. Stórkostleg afgreiðsla.

Mikael og félagar leituðu að jöfnunarmarki en sköpuðu litla sem enga hættu við mark heimamanna á Ólympíuleikvanginum. Þess í stað innsiglaði Emanuele Lulli sigur heimamanna á 68. mínútu, svo lokatölur urðu 2-0.

Roma er í öðru sæti ítölsku deildarinnar með 17 stig eftir 7 umferðir - tveimur stigum á eftir Ítalíumeisturum Inter sem verma toppsætið.

Genoa situr eftir í fallsæti, með 4 stig.
Ítalía: Róteraðir Rómverjar ekki í vandræðum gegn Mikael Agli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.