Fotbolti.net
17.10.26 - 18:03
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Ítalíumeistararnir með endurkomusigur í Bologna

Ítalía: Ítalíumeistararnir með endurkomusigur í Bologna
Canon

Mynd: EPA

Bologna 1 - 3 Inter
1-0 Tommaso Pobega ('10 )
1-1 Marcus Thuram ('44 )
1-2 Carlos Augusto ('69 )
1-3 Ange-Yoan Bonny ('84 )
Bologna tók á móti Ítalíumeisturum Inter í efstu deild ítalska boltans í dag og náðu heimamenn forystunni snemma leiks, þegar Tommaso Pobega óð í gegn og skoraði. Pobega vann boltann hátt uppi á vellinum eftir misheppnaða sendingu frá Luis Henrique, óð framhjá Yann-Aurel Bisseck og skoraði.

Bæði lið fengu góð færi til að skora næsta mark í opnum og skemmtilegum slag. Pobega komst nálægt því að tvöfalda forystuna en gestirnir í liði Inter jöfnuðu metin undir lok fyrri hálfleiks. Franski framherjinn Marcus Thuram var þar á ferðinni með frábærum skalla eftir góða fyrirgjöf Nicoló Barella.

Staðan var því 1-1 eftir afar fjörugan fyrri hálfleik en Ítalíumeistararnir, sem töpuðu óvænt á heimavelli gegn Club Brugge í miðri viku, hafa fengið hárblásarann frá Cristian Chivu þjálfara. Þeir mættu tvíefldir til leiks í síðari hálfleikinn og sáu heimamenn í Bologna aldrei til sólar.

Carlos Augusto kom inn af bekknum og skoraði af stuttu færi eftir frábæran undirbúning frá Andy Diouf og Piotr Zielinski, áður en Ange-Yoan Bonny, sem hafði einnig komið inn af bekknum, innsiglaði sigurinn á 84. mínútu. Bonny skoraði eftir frábæran undirbúning frá varamönnunum Henrikh Mkhitaryan og Carlos Augusto.

Lokatölur urðu 1-3 og er þetta dýrmætur sigur fyrir Inter sem er í toppbaráttunni. Lærlingar Chivu eiga 19 stig eftir 7 umferðir, með þriggja stiga forystu á Lazio sem á leik til góða.

Bologna er aðeins með 5 stig eftir 7 umferðir.
Ítalía: Ítalíumeistararnir með endurkomusigur í Bologna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.