Fotbolti.net
17.10.26 - 14:13
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Atlético á miklu skriði - Alvarez lagði upp sigurmarkið

Varamaðurinn Alex Baena gerði sigurmarkið

Varamaðurinn Alex Baena gerði sigurmarkið

Canon

Mynd: EPA

Espanyol 0 - 1 Atletico Madrid
0-1 Alex Baena ('89 )
Atlético Madríd vann sinn sjötta leik í röð í öllum keppnum þegar liðið marði 1-0 sigur á Espanyol í La Liga á Spáni í dag.

Madrídingar hafa verið á mikilli siglingu undanfarið og unnið nokkra mikilvæga sigra, meðal annars gegn nágrönnum sínum í Real Madrid í síðasta mánuði.

Það voru varamennirnir sem sáu um að tryggja sigurinn í dag, en þeir Julian Alvarez og Alex Baena komu báðir inn af bekknum og áttu saman þátt í sigurmarkinu undir lok leiksins.

Á 89. mínútu skar Alvarez sig inn í vítateiginn og lagði boltann út á Baena, sem tók eina snertingu áður en hann stýrði boltanum í netið og tryggði Atlético öll þrjú stigin.

Þetta var fimmti deildarsigur Atlético í röð og sá sjötti í öllum keppnum, en liðið er í öðru sæti deildarinnar með 22 stig, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Barcelona. Espanyol situr hins vegar í tólfta sæti með átta stig.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona8+2724
2Atletico Madrid9+1122
3Betis8+519
4Real Madrid8+1118
5Sevilla8+114
6Real Sociedad8-313
7Alaves8+411
8Deportivo9+111
9Celta8+28
10Athletic6+18
11Villarreal808
12Espanyol9-18
13Vallecano7-58
14Getafe8-68
15Racing Santander8-108
16Osasuna8-108
17Levante8-47
18Elche8-66
19Valencia8-95
20Malaga8-94
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.