Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. nóvember 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Heimavöllur Einherja vekur athygli úti í heimi
Úr leik hjá Einherja
Úr leik hjá Einherja
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fótboltatímaritið Mundial birtir í dag á Twitter síðu sinni brot úr leik hjá Einherja í 3. deildinni í sumar.

Mundial fjallar um fótbolta út um allan heim og þar á bæ eru menn hrifnir af heimavelli Einherja á Vopnafirði.

Mundial birti á Twitter síðu sinni í dag brot úr leik með Einherja þar sem talað er um fjöllin í kringum völlinn og að bílar geti lagt fyrir aftan annað markið.

Meðal þeirra sem hafa vakið athygli á færslu Mundial í dag er Max Rushden sem er þekktur útvarpsmaður hjá Talksport í Englandi.

Hér að neðan má sjá færsluna.


Athugasemdir
banner
banner