Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 18. janúar 2020 15:31
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Annað tap Leeds í röð
Mynd: Getty Images
QPR 1 - 0 Leeds
1-0 Nahki Wells ('20)
Rautt spjald: Kalvin Phillips, Leeds ('80)

Leeds United var með góða forystu á toppi Championship deildarinnar ásamt West Bromwich Albion en hefur verið að tapa henni niður með slæmum úrslitum síðustu vikur.

Annar tapleikur liðsins í röð kom í dag gegn QPR en Nahki Wells gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Patrick Bamford klúðraði vítaspyrnu fyrir Leeds eftir leikhlé og fékk Kalvin Phillips beint rautt spjald á 88. mínútu.

Leeds hefur aðeins fengið eitt stig úr síðustu þremur leikjum og er einu stigi á eftir West Brom, sem hefur einnig verið að ganga illa og er búið að fá fjögur stig úr síðustu fimm leikjum.

QPR er fjórum stigum frá umspilsbaráttunni, með 38 stig eftir 28 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner