Fotbolti.net
18.02.26 - 18:48
Ívan Guðjón Baldursson

Anthony Gordon í sögubækurnar

Anthony Gordon í sögubækurnar
Canon

Mynd: EPA

Newcastle United er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir frábæran fyrri hálfleik á útivelli gegn Qarabag. Liðin eru að etja kappi þessa stundina.
Það var aðeins eitt lið á vellinum fyrir leikhlé þar sem Qarabag skapaði sér ekki stakt færi á meðan gestirnir frá Newcastle óðu í færum.

Góð færi fóru forgörðum en það skipti engu máli því gestunum tókst að skora fimm mörk, með Anthony Gordon fremstan í flokki.

Gordon gerði sér lítið fyrir og skoraði fernu í fyrri hálfleik, sem hefur aldrei verið gert áður í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.

Nokkrir leikmenn hafa skorað fjögur mörk í sama leiknum í útsláttarkeppninni, en engum hefur tekist að skora þau öll í sama hálfleiknum.

Cristiano Ronaldo og Robert Lewandowski hafa afrekað að skora fjögur mörk í sama hálfleik í Meistaradeildinni, en það var í riðlakeppninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.