18.06.15 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Andreas Weimann til Derby (Staðfest)

Andreas Weimann hefur gegnt mikilvægu hlutverki undir stjórn Tim Sherwood.

Mynd: Getty Images

Hinn 23 ára gamli Andreas Weimann er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Derby County.
Weimann kemur frá Aston Villa en kaupverðið hefur ekki verið tilgreint. Hjá Derby myndar hann framlínu með Darren Bent, sem er einnig fyrrverandi leikmaður Villa.

Weimann á 13 landsleiki að baki fyrir Austurríki og átti gott tímabil hjá Villa. Hann er fjórði leikmaðurinn sem kemur til Derby í sumar eftir Bent, Alex Pearce og Scott Carson.
„Andreas er ungur og býr yfir reynslu sem kemur sér mjög vel. Hann er efnilegur, enda aðeins 23 ára, og mjög spennandi leikmaður,\" sagði Paul Clement, nýr stjóri Derby.
Derby komst ekki upp í úrvalsdeildina undir stjórn Steve McClaren sem var rekinn og fær Clement nú tækifæri til að koma liðinu upp.

Heimild: BBC