Fotbolti.net
18.06.15 - 15:45
Magnús Már Einarsson

Cédric Soares í Southampton (Staðfest) - Hvert fer Clyne?

Cédric Soares í Southampton (Staðfest) - Hvert fer Clyne?
Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur keypt hægri bakvörðinn Cédric Soares frá Sporting Lisabon.

Soares er 23 ára gamall og á fjóra landsleiki að baki fyrir Portúgal. Hann hefur leikið allan sinn feril fyrir Sporting CP og varð bikarmeistari með félaginu á nýliðnu tímabili.
„Southampton er stórt félag á Englandi,\" sagði Soares eftr að hann krotaði undir.

„Það er mikilvægt fyrir mig að spila með stóru félagi og ég tel að við getum bætt okkur ár frá ári.\"

Soares á að fylla skarð Nathaniel Clyne sem er líklega á förum frá Southampton en félagið ætlar að selja hann í sumar frekar en að missa hann frítt næsta sumar. Clyne hefur meðal annars verið orðaður við Liverpool að undanförnu.

CONFIRMED: #SaintsFC sign Portugal defender Cédric Soares on a four-year contract from @Sporting_CP.
https://t.co/PmBSQ3AM0N

— Southampton FC (@SouthamptonFC) June 18, 2015


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.