Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Spænsk félög ætla í viðræður við Diangana
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Kantmaðurinn Grady Diangana er samningslaus eftir fimm ár hjá West Bromwich Albion.

Diangana þótti gríðarlega efnilegur og voru stuðningsmenn West Ham United æfir þegar hann var seldur til West Brom fyrir fimm árum.

Diangana spilaði 171 leik fyrir West Brom og kaus að semja ekki aftur við félagið. Hann er 27 ára gamall og kom að 7 mörkum í 35 leikjum á nýliðnu tímabili.

Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu er áhugasamt um að krækja í Diangana en leikmaðurinn vill frekar vera áfram í Evrópu. Hann er líklegast á leið til Spánar þar sem tvö lið eru sögð vera sérlega áhugasöm um hann.

Fabrizio Romano segir að Valencia og Mallorca hafa bæði áhuga á leikmanninum og gætu hafið viðræður á næstu dögum.

Diangana á 8 landsleiki að baki fyrir Austur-Kongó eftir að hafa spilað þrjá leiki fyrir yngri landslið Englands.

West Brom endaði í níunda sæti Championship deildarinnar á nýliðnu tímabili, aðeins fjórum stigum frá umspilssæti.
Athugasemdir
banner
banner