Fotbolti.net
18.10.20 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Mourinho: Fótbolti gerðist - Soucek er nýi Fellaini

Mourinho: Fótbolti gerðist - Soucek er nýi Fellaini
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho var spurður út í hvað gerðist á fréttamannafundi eftir sögulegt 3-3 jafntefli Tottenham gegn West Ham United í dag.
Tottenham tók þriggja marka forystu eftir 16 mínútur og leiddi þar til á 82. mínútu, þegar Hamrarnir komu til baka.

„Fótbolti gerðist. Auðvitað þurfum við að greina nákvæmlega hvað gerðist en þegar ég er spurður þá kýs ég að svara að fótbolti gerðist. Svo vil ég líka hrósa trúnni sem West Ham hafði og gerði þeim kleift að jafna, það er ekki auðvelt að halda í trúna þegar maður er 3-0 undir gegn liði sem stjórnar leiknum," svaraði Mourinho.

„Þetta var þung refsing fyrir okkur en þó verðskulduð. Mörkin voru óheppileg, þau komu úr föstum leikatriðum og svo var sjálfsmarkið. Við vorum með stjórn á leiknum og Harry Kane var næstum búinn að gera fjórða markið en skaut í stöng. Svona er fótboltinn. Þeir voru heppnir en þeir verðskulduðu heppnina."

Mourinho var svekktur en Tottenham er með átta stig eftir fimm umferðir þrátt fyrir að hafa sýnt frábæra takta.

„Við vorum með þennan leik í vasanum en enduðum á að tapa tveimur stigum."

Hann tjáði sig um Tomas Soucek, miðjumann West Ham, að lokum og líkti honum við Marouane Fellaini.

„Ég varaði strákana við föstu leikatriðunum því við vitum að þeir eru mjög sterkir þar. David Moyes gerði vel að næla í Soucek, hann er búinn að finna nýja Fellaini."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.