Fotbolti.net
18.10.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

„Þeir fela sig og eru hæddir"

„Þeir fela sig og eru hæddir"
Canon

Mynd: EPA

Gleison Bremer, varnarmaður Juventus, var alls ekki sáttur með liðsfélaga sína eftir 3-0 tap gegn Lazio í kvöld. Stuðningsmenn liðsins voru ekki hrifnir af frammistöðunni, sumir yfirgáfu völlinn snemma en aðrir hraunuðu yfir liðið.
„Það eru 11 leikmenn á vellinum, auk þeirra fimm sem koma inn af bekknum, ég get ekki borið alla uppi. Ég reyni að færa hjálparhönd, tala við þá, en þeir eru mismunandi karakterar," sagði Bremer.

„Ef það er smá mótlæti fela þeir sig og eru hræddir. Ég veit að við erum með marga nýja og unga leikmenn svo ef þú berð þetta saman við Juve fyrir nokkrum árum þá er þetta allt annað."

„Ég er ekki að benda fingri á strákana. Þegar hlutirnir ganga ekki upp bregðast nokkrir við með ákveðni en aðrir fela sig," sagði Bremer að lokum:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.