18.10.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Er Beckham rétti maðurinn til að knésetja Infantino?


Mynd: David Beckham/Facebook


Mynd: EPA


Mynd: David Beckham/Facebook
Sky í Þýskalandi greinir frá því að stjórnarmenn innan þýska fótboltasambandsins, DFB, og evrópska fótboltasambandsins, UEFA, séu að íhuga að sannfæra David Beckham um að bjóða sig fram fyrir forsetakosningar FIFA.

TENGT EFNI
Leita að manni til að knésetja Infantino
Mikið ósætti ríkir innan fótboltaheimsins vegna stjórnarhátta núverandi forseta FIFA, Gianni Infantino. Margir aðilar innan fótboltans vilja losna við Infantino úr forsetastólnum eftir hans umdeildu uppátæki, en hingað til hefur vantað trúverðugan keppinaut.
Beckham er talinn uppfylla öll skilyrði sem þarf til að geta tekið við forsetastólnum. Hann er heimsfrægur, mjög vel efnaður og býr yfir reynslu sem stjórnandi og hluteigandi í Inter Miami.
Beckham er talinn uppfylla öll skilyrði sem þarf til að geta tekið við forsetastólnum. Hann er heimsfrægur, mjög vel efnaður og býr yfir reynslu sem stjórnandi og hluteigandi í Inter Miami.


Mynd: EPA



