19.05.15 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Scott Sinclair til Aston Villa (Staðfest)

Scott Sinclair fékk lítið að spila hjá Man City og fékk yfirleitt að sitja bara á bekknum þegar hann var valinn í hóp.

Mynd: Getty Images

Scott Sinclair er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Aston Villa sem er búið að vera með kantmanninn á láni frá Manchester City síðan í janúar.
Hjá Villa hefur Sinclair spilað 8 deildarleiki og skorað eitt mark en er auk þess búinn að gera tvö mörk í bikarnum og hjálpað Villa að komast í úrslitaleikinn gegn Arsenal.

„Ég er mjög ánægður og hlakka til næsta tímabils. Það er mjög gott að geta setist hér að með fjölskyldunni sem líður vel á nýjum stað,\" sagði Sinclair.
„Það er mikilvægt fyrir knattspyrnumann að hafa stöðugleika, hann mun gera mig betri og hjálpa mér að hjálpa þessu frábæra félagi.\"
Sinclair er 26 ára gamall og gerði góða hluti með Swansea City áður en hann var keyptur til Man City þar sem honum tókst ekki að komast í byrjunarliðið.

Heimild: AVFC