Fotbolti.net
19.06.15 - 14:09
Magnús Már Einarsson

Kakuta farinn frá Chelsea fyrir fullt og allt (Staðfest)

Kakuta farinn frá Chelsea fyrir fullt og allt (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Sevilla hefur keypt franska kantmanninn Gael Kakuta frá Chelsea.

Kakuta kom til Chelsea frá Lens árið 2007 en enska félagið var árið 2009 dæmt í félagskiptabann þar sem félagaskiptin fóru fram með ólöglegum hætti.

Kakuta náði ekki að sýna mikið hjá Chelsea en hann spilaði einungis 16 leiki í bláu treyjunni.

Á síðasta tímabili var Kakuta í láni hjá Rayo Vallecano í spænsku úrvalsdeildinni.
Áður hafði hann verið á láni hjá Lazio, Fulham, Bolton og fleiri félögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.