19.08.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Raphinha fyrirliði þar til leikmenn kjósa
Tekur við af Araújo

Mynd: EPA

Mynd: Barcelona

Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Raphinha hefur verið valinn sem bráðabirgðafyrirliði Barcelona eftir að Ronald Araújo var lánaður til Liverpool á dögunum.

TENGT EFNI
Flick kveður Araujo - „Höfum ekki getað notað hann eins mikið og við hefðum viljað“
Hansi Flick þjálfari valdi Raphinha sem fyrirliða, með Pedri og Eric García sem varafyrirliða.
Raphinha verður því með fyrirliðabandið í næstu leikjum en klefinn mun svo kjósa um næsta fyrirliða eins og tíðkast hjá Barca.
Það kom á óvart að Frenkie de Jong hafi ekki verið nefndur í fyrirliðahópinn en Flick segir að það sé vegna meiðsla.
„Frenkie er meiddur og þess vegna var hann ekki valinn. Ég valdi fyrirliðana til bráðabirgða þar til klefinn fær tækifæri til að kjósa um næsta fyrirliða eftir að félagaskiptaglugginn lokar," sagði Flick.