Fotbolti.net
18.08.26 - 22:39
Ívan Guðjón Baldursson

Kveðjunum rignir yfir Jón Daða

Elskaður af stuðningsmönnum

Kveðjunum rignir yfir Jón Daða
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Jón Daði Böðvarsson er búinn að leggja fótboltaskóna á hilluna og hefur kveðjunum rignt yfir hann á samfélagsmiðlum.
Jón Daði leggur skóna á hilluna
TENGT EFNI

Jón Daði leggur skóna á hilluna

Hann fær sérstaklega hlýjar kveðjur frá stuðningsmönnum Burton Albion, Bolton Wanderers og Reading, enda elskuðu stuðningsmenn Jón Daða hvar sem hann spilaði.

Jón Daði lék sem sóknarmaður og var hans helsta einkenni að vera gríðarlega vinnusamur. Hann lagði sig alltaf allan fram fyrir liðið og því tóku stuðningsmenn eftir. Hann gafst aldrei upp og smitaði frá sér gríðarlegum baráttuvilja til liðsfélaganna sem gerði hann að ómetanlegum leikmanni.

Jón Daði endaði ferilinn hjá uppeldisfélaginu UMF Selfoss eftir að hafa leikið fyrir Viking, FC Kaiserslautern, Wolves, Reading, Millwall, Bolton, Wrexham og Burton.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af þeim kveðjum sem bárust honum á samfélagsmiðlinum X.







Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.