19.08.26 - 00:12
Ívan Guðjón Baldursson
Musiala hneig niður í annað sinn á fjórum dögum
Taugavandamál orsökin

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sóknartengiliðurinn knái Jamal Musiala hneig niður í æfingaleik FC Bayern gegn Heidenheim í gær og er þetta í annað sinn á fjórum dögum sem það kemur fyrir.

TENGT EFNI
Musiala hneig niður í miðjum leik
Læknateymi Bayern telur að hér sé um taugavandamál að ræða frekar heldur en einhvers konar hjartagalla.
Musiala var aðeins sex mínútur á vellinum áður en hann hneig niður gegn Heidenheim og virtist ringlaður þegar læknateymið hljóp inn á völlinn. Þessi þýski landsliðsmaður er 23 ára gamall og lenti í svipuðu atviki í æfingaleik gegn RB Leipzig um helgina.
„Ég hef verið greindur með tímabundið flogavandamál sem er auðvelt að hafa hemil á. Þetta er orsakað af smávægilegu taugavandamáli og ég skil að fólk sé hrætt, en það er engin ástæða til þess. Þetta er orðið partur af daglegu lífi hjá mér og ég er mjög bjartsýnn á að þetta lagist. Ég er í frábærum höndum," sagði Musiala eftir sigurinn gegn Heidenheim.
Musiala kom inn af bekknum bæði gegn Leipzig og Heidenheim og þurfti að fá skiptingu skömmu síðar. Honum tókst þó að skora í sigrinum gegn Leipzig.
Musiala glímdi við afar erfið meiðsli í fyrra eftir að hann ökklabrotnaði á HM félagsliða síðasta sumar. Hann jafnaði sig þó af meiðslunum og tók þátt í heimsmeistaramótinu með Þýskalandi, sem datt óvænt úr leik í 32-liða úrslitum.