Fotbolti.net
18.08.26 - 22:55
Ívan Guðjón Baldursson

Newcastle hefur viðræður við Man City

Í leit að arftaka fyrir Bruno Guimaraes

Newcastle hefur viðræður við Man City
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá því að Newcastle United hafi rætt við Manchester City um miðjumanninn Nico González.
City leggur áherslu á að landa Bouaddi í þessari viku
TENGT EFNI

City leggur áherslu á að landa Bouaddi í þessari viku

Nico er 24 ára Spánverji sem Man City keypti úr röðum Porto fyrir einu og hálfu ári síðan. Hann kostaði um 50 milljónir punda og hefur spilað 59 leiki á fyrstu 18 mánuðunum í Manchester.

Newcastle er í leit að miðjumanni til að fylla í skarðið fyrir Bruno Guimaraes sem var seldur til Arsenal fyrr í sumar og er Nico ofarlega á óskalistanum.

Það eru þó ekki miklar líkur á að City vilji selja annan miðjumann án þess að kaupa nýjan inn í staðinn eftir að hafa misst Bernardo Silva, Rodri og Tijjani Reijnders í sumar.

Nico er uppalinn hjá Barcelona og spilaði 19 leiki fyrir yngri landslið Spánar, en á eftir að taka stökkið upp í A-landsliðið.
Newcastle hefur viðræður við Man City
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.