18.08.26 - 21:24
Ívan Guðjón Baldursson
Crystal Palace borgar 10 milljónir fyrir Gozo (Staðfest)
Fjölhæfur kantmaður

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Crystal Palace er búið að ganga frá félagaskiptum fyrir kantmanninn enfilega Zavier Gozo.

TENGT EFNI
Palace að fá ísraelskan landsliðsmann
Gozo er 19 ára gamall og kom með beinum hætti að 10 mörkum í 16 leikjum á yfirstandandi tímabili í MLS deildinni.
Hann kemur til Palace úr röðum Real Salt Lake og kostar 10 milljónir punda. Hann er hægri kantmaður að upplagi og getur einnig spilað sem vængbakvörður eða sem fremsti sóknarmaður.
Gozo, sem á 5 mörk í 27 leikjum fyrir yngri landslið Bandaríkjanna, gerir fimm ára samning við Palace.
Hann er sjötti leikmaðurinn sem félagið fær til sín í sumar eftir Óscar Mingueza, Takehiro Tomiyasu, Dwight McNeil, Evann Guessand og Anan Khalaili.

The American connection ???????? pic.twitter.com/XqJuVXpjZa
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) August 18, 2026

Mynd: EPA