Fotbolti.net
19.09.26 - 11:26
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

„Ég er sannur maður í fölskum heimi“

Radja Nainggolan

Radja Nainggolan

Canon

Mynd: EPA

Belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan segist njóta lífsins vel hjá B-deildarliðinu Patro Eisden í heimalandinu, en telur sig enn hafa burði til að spila á hæsta stigi fótboltans.
Nainggolan var um árabil einn besti miðjumaður ítölsku deildarinnar og lék meðal annars með Roma og Inter.

Hann sló fyrst í gegn með Cagliari áður en hann fór til Roma og þaðan til Inter. Á tólf tímabilum sínum í Seríu A var hann fjórum sinnum valinn í lið ársins.

„Tilfinningin er sú að ég myndi elska að spila svona leiki og ég gæti það líklega enn. Fótboltinn er orðinn auðveldari, bæði hvað reglurnar varðar og gæðin. Ég er enn í góðu formi og væri alveg til í að vera inni á vellinum. Ég fór á leik Roma og Fiorentina og fann strax fyrir þessari löngun til að klæða mig aftur í skóna,“ sagði Nainggolan.

Hann er sannfærður um að hann gæti enn komist í liðið hjá Roma og segir sig hlaupa meira en flestir hjá Patro Eisden, sem hann samdi við á síðustu leiktíð.

„Já, það held ég. Ég myndi finna mér sæti í liðinu, annað hvort sem sóknarsinnaður miðjumaður eða sem teig í teig miðjumaður.“

„Í leikjum hef ég tekið eftir því að ég hleyp meira en margir af ungu leikmönnunum. Ég nýt þess líka að leiðbeina þeim yngri, en ég tel mig enn geta spilað á hæsta stigi. Ég þoli hins vegar ekki æfingar og hef aldrei verið sérstaklega hrifinn af þeim.“


Nainggolan ræddi einnig tíma sinn hjá Inter. Hann segir Antonio Conte hafa tjáð sér strax að hann væri ekki hluti af áætlunum sínum þegar Ítalinn tók við liðinu, en telur mögulegt að eldri saga þeirra tveggja hafi einnig spilað inn í.

„Ég þurfti að gjalda fyrir brottför Spalletti. Conte sagði strax við mig að ég væri ekki hluti af áætlunum hans og var mjög hreinn og beinn við mig, sem ég virti. Kannski var hann samt enn pirraður yfir því að ég hafði hafnað honum þegar hann var hjá Chelsea, en hann var ekki sá eini. Ég hafnaði líka risatilboði frá Kína til að vera áfram hjá Roma á þeim tíma.“

Nainggolan var að lokum spurður hvernig hann vildi að fótboltaheimurinn myndi eftir sér.

„Sem sannur maður, ólíkt mörgum fölskum mönnum í þessum bolta. Hvað sem á gengur mun ég alltaf geta horft á sjálfan mig í speglinum,“ sagði Nainggolan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.