19.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópa í dag - Ísak, Barcelona og Dortmund eiga leiki

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í fótboltanum í sterkustu deildum Evrópu í dag þar sem Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í FC Köln mæta til leiks í efstu deild í Þýskalandi.
Köln, sem er með fjögur stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar, heimsækir stigalaust botnlið HSV til Hamborgar á meðan fjórir aðrir leikir fara fram. Stórleikur dagsins hefst síðar, þegar Stuttgart fær Borussia Dortmund í heimsókn.
Ísak spilaði 90 mínútur fyrstu tvo deildarleiki tímabilsins, eftir að hafa skorað mikilvæga tvennu í bikarnum, og kom svo inn af bekknum um síðustu helgi.
Í spænska boltanum eru fjórir leikir á dagskrá þar sem Athletic Bilbao og Celta Vigo eiga heimaleiki áður en Spánarmeistarar Barcelona mæta til leiks. Lærlingar Hansi Flick hafa verið í miklu stuði á upphafi tímabils og heimsækja Sevilla í kvöld.
Barca er búið að skora 28 mörk í fyrstu 6 leikjum deildartímabilsins og er með fullt hús stiga. Liðið er á sama tíma búið að fá 6 mörk á sig og er því með 22 mörk í plús.
Að lokum eru fimm leikir á dagskrá í efstu deild í Frakklandi. Þar á Strasbourg erfiðan útileik við spennandi lið Paris FC áður en Lyon fær Rennes í heimsókn. Tveir afar áhugaverðir slagir í efri hlutanum.
Til gamans má geta að ríkjandi meistarar Paris Saint-Germain eru óvænt aðeins komnir með fimm stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar. Þeir unnu naumlega á útivelli gegn Brest um síðustu helgi og heimsækja Marseille annað kvöld.
Bundesliga
13:30 Gladbach - Mainz
13:30 Frankfurt - Freiburg
13:30 Hamburger - Köln
13:30 Werder Bremen - Augsburg
16:30 Stuttgart - Dortmund
La Liga
12:00 Osasuna - Rayo Vallecano
14:15 Athletic Bilbao - Alaves
16:30 Celta Vigo - Racing Santander
19:00 Sevilla - Barcelona
Ligue 1
15:15 Paris FC - Strasbourg
18:45 Angers - Troyes
18:45 Le Mans - Lorient
18:45 Lyon - Rennes
18:45 Toulouse - Le Havre