Fotbolti.net
19.09.26 - 10:35
Brynjar Ingi Erluson

Cole Campbell í 28-manna landsliðshópi Pochettino

Cole Campbell mun spila fyrir A-landslið Bandaríkjanna

Cole Campbell mun spila fyrir A-landslið Bandaríkjanna

Canon

Mynd: EPA

Hinn bandarísk-íslenski Cole Campbell hefur verið valinn í A-landslið Bandaríkjanna í fyrsta sinn af argentínska þjálfaranum Mauricio Pochettino, en hópurinn var tilkynntur á dögunum.
Meitlað í stein að Campbell velji Bandaríkin fram yfir Ísland - Bíður eftir kallinu frá Pochettino
TENGT EFNI

Meitlað í stein að Campbell velji Bandaríkin fram yfir Ísland - Bíður eftir kallinu frá Pochettino

Pochettino valdi marga unga og efnilega leikmenn í hópinn fyrir vináttulandsleikina gegn Perú, Síle, Mexíkó og Kanada.

Undankeppni næsta heimsmeistaramóts hefst í september á næsta ári og vill Pochettino því nota næstu verkefni til að skoða nýja leikmenn.

Cole Campbell, leikmaður Elversberg í Þýskalandi, er í hópnum í fyrsta sinn. Hann lék áður með Breiðabliki og FH hér heima, en á íslenska móður og bandarískan föður.

Campbell hefur síðustu ár leikið með yngri landsliðum Bandaríkjanna og staðfesti að framtíð hans liggi þar eftir að hafa áður leikið með U17 ára landsliði Íslands.

Markverðir: Chris Brady (Chicago Fire), Matt Freese (New York City FC), Diego Kochen (Lyngby), Brian Schwake (Nashville SC)

Varnarmenn: George Campbell (West Bromwich Albion), Sergino Dest (PSV Eindhoven), Alex Freeman (Villarreal), Peyton Miller (New England Revolution), Neil Pierre (Philadelphia Union), Chris Richards (Crystal Palace), Antonee Robinson (Fulham), Miles Robinson (FC Cincinnati), Auston Trusty (Celtic), Frankie Westfield (Philadelphia Union).

Miðjumenn: Tyler Adams (AFC Bournemouth), Mathis Albert (Borussia Dortmund), Sebastian Berhalter (Middlesbrough), Zavier Gozo (Crystal Palace), Adri Mehmeti (Red Bull New York), Yunus Musah (AC Milan), Brooklyn Raines (New England Revolution), Gio Reyna (RC Strasbourg), Malik Tillman (Bayer Leverkusen)

Framherjar: Cole Campbell (SV Elversberg); Justin Ellis (Orlando City), Julian Hall (Red Bull New York), Ricardo Pepi (PSV Eindhoven), Cavan Sullivan (Philadelphia Union)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.