19.09.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Courtois vill búa til akademíu fyrir markmenn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois hefur á síðustu árum verið talinn til allra bestu markvarða heims.
Hann hefur staðið sig feykilega vel sem landsliðsmarkvörður Belgíu og aðalmarkvörður Real Madrid, en þar áður var hann hjá Chelsea, Atlético Madrid og Genk.
Courtois er 34 ára gamall og telur sig eiga nokkur góð ár eftir sem atvinnumaður í fótbolta. Þegar hann leggur skóna á hilluna dreymir hann um að opna akademíu fyrir markmenn.
„Ég vil halda áfram að spila fótbolta í fimm eða sex ár áður en ég hætti. Eftir það vil ég búa til akademíu fyrir markmenn," sagði Courtois, sem mun verja mark Real Madrid í grannaslagnum gegn Atlético á sunnudag.