19.10.26 - 09:16
Elvar Geir Magnússon
Verri byrjun en hjá Tudor

Luciano Spalletti.

Mynd: EPA

Luciano Spalletti.

Mynd: EPA
Juventus fékk 3-0 skell gegn Lazio í ítölsku A-deildinni í gær og er byrjun liðsins undir stjórn Luciano Spalletti á þessu tímabili verri en hún var hjá Igor Tudor á því síðasta, rétt áður en Króatinn var rekinn.
Það var baulað á Juventus eftir tapið gegn Lazio en liðið er þegar átta stigum á eftir toppliðum Inter og Lazio. Juventus var með einu stigi meira á sama tímapunkti undir stjórn Tudor í fyrra.
Tudor var rekinn eftir átta umferðir en sjö umferðir eru búnar af ítölsku A-deildinni þetta tímabilið.

TENGT EFNI
Ítalía: Lazio fór illa með Juventus - Rabiot sjóðandi heitur
Spalletti viðurkennir að Juventus hafi verið lakari en Lazio á alla vegu í tapinu á heimavelli og segir að eitthvað þurfi að breytast. „Ég var líka hissa á hvað við vorum lélegir,“ sagði hann.