Söluverð FCK gæti numið allt að 57 milljörðum króna

Viktor Bjarki Daðason, Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen er á mála hjá karlaliði FCK.

Mynd: EPA

Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir spilar fyrir kvennalið FCK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Bjarki Daðason, Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen er á mála hjá karlaliði FCK.

Mynd: EPA

Nú í vikunni bárust fréttir frá Danmörku þess efnis að FC Köbenhavn væri mögulega falt fyrir rétta upphæð. Í tilkynningu til dönsku kauphallarinnar síðasta þriðjudag var greint frá því að Parken Sports & Entertainment, móðurfélag FCK, hefði ráðið Tifosy Capital & Advisory ráðgjafarstofuna til þess að kanna möguleikann á sölu á fótboltaliðinu.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 18. október á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Árið 2025 námu tekjur FCK rúmlega 12.284 milljónum íslenskra króna. Til samanburðar voru tekjur Breiðabliks, tekjuhæsta íslenska félagsins, ríflega 1.349 milljónir króna árið 2025. Útgjöldin hjá FCK voru á sama tíma rúmlega 12.651 milljónir króna og því nam rekstrarafkoman fyrir leikmannaviðskipti tæplega 1.633 milljónum króna. Ef litið er yfir síðustu fimm árin má sjá að veltan náði hápunkti árið 2023, þegar tekjur félagsins voru 16.913 milljónir króna.
Ef byggt er á tekjumargföldurum þeirra danskra liða sem eru skráð í dönsku kauphöllinna, ásamt tekjumargföldurum úr nýlegum kaupum og sölum á dönsku félögum, gæti virði FCK verið einhvers staðar á bilinu 14-57 milljarðar króna.

UTAN VALLAR: FC Köbenhavn sett á sölu

Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir spilar fyrir kvennalið FCK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
