Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 20. janúar 2021 08:00
Aksentije Milisic
Diallo gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Man Utd í næsta mánuði
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að Amad Diallo, nýjasti leikmaður liðsins, gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir United strax í næsta mánuði.

Diallo kom til United í mánuðinum frá Atalanda fyrir 37 milljónir punda. Atalanta vildi halda leikmanninum í sínum röðum út tímabilið en United vildi fá hann strax.

Þessi 18 ára vængmaður er byrjaður að æfa með aðalliði United og var planið að láta hann spila með undir 23 ára liðið liðsins eins og liðið er að gera með Facundo Pellestri.

Solskjær hefur hins vegar trú á því að Diallo gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið fljótlega. Hann hefur hrifið Solskjær á æfingum til þessa.

„Hann er að aðlagast vel. Hann brosir, æfir mjög vel og er flottur karakter. Fyrsti leikur hans fyrir liðið gæti komið fyrr en ég átti von á," sagði Ole um Diallo.

„Hann er góður með knöttinn og er að njóta þess að æfa. Hann gerir gæfumuninn á æfingum, sem er magnað ef litið er á aldur hans."
Athugasemdir
banner
banner
banner