Franska stórliðið Paris Saint-Germain er í viðræðum við Tottenham um að fá miðjumanninn Tanguy Ndombele á láni.
Þetta kemur fram í frétt vefmiðilsins Goal.
Ndombele varð dýrasti leikmaður í sögu Tottenham þegar hann var keyptur til félagsins frá Lyon sumarið 2019 fyrir 54 milljónir punda.
Hann hefur alls ekki staðist væntingar í London. Ndombele hefur lítið komið við sögu síðan Antonio Conte tók við Tottenham og stuðningsfólk félagsins hefur ekki verið sátt með hann þegar hann hefur spilað.
Hann er mögulega á leið aftur til Frakklands. PSG vill fá hann á láni og að sögn Goal er Tottenham tilbúið að gefa grænt ljós á það.
Hinn 25 ára gamli Ndombele var stuðningsmaður PSG í æsku og hann er sagður spenntur fyrir því að fara þangað.
Athugasemdir