Kristinn Þór Rósbergsson hefur skrifað undir samning við Dalvík/Reyni en þetta staðfesti félagið á Facebook síðu sinni í gær.
Kristinn kemur til félagsins frá Magna Grenivík en þar hafði hann leikið undanfarin fimm ár.
Um er að ræða öflugan framherja sem á að baki 147 meistaraflokksleiki og hefur í þeim skorað 53 mörk.
Kristinn er uppalinn hjá Þór Akureyri og lék með Dalvík/Reyni á láni í 2.deildinni árið 2013.
Af Facebook síðu D/R:
Kristinn Þór Rósbergsson, sóknarmaðurinn knái, hefur skrifað undir eins árs samning við Dalvík/Reyni.
Krissi kemur til liðs við D/R frá Magna Grenivík þar sem hann hefur leikið stórt hlutverk undanfarin ár, en hann er upplinn Þórsari.
Virkilega jákvæðar fréttir og það verður spennandi að sjá Krissa með sitt markanef á Dalvíkurvelli.
Athugasemdir