Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. febrúar 2021 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ryan Shawcross til Inter Miami (Staðfest)
Ryan Shawcross.
Ryan Shawcross.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Ryan Shawcross er búinn að skrifa undir samning við Inter Miami í MLS-deildinni.

Shawcross kemur til Inter Miami á frjálsri sölu frá Stoke City þar sem hann var um tæplega 14 ára skeið.

Hinn 33 ára gamli Shawcross átti að verða samnigslaus í sumar en hann komst að samkomulagi um að losna fyrr undan samningi.

David Beckham er eigandi Inter Miami en Phil Neville er nýráðinn þjálfari liðsins.

Keppni í MLS-deildinni hefst þann 3. apríl næstkomandi en Shawcross kemur með mikla reynslu í lið Inter Miami eftir að hafa spilað yfir 400 leiki með Stoke í ensku úrvalsdeildinni og Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner