Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 20. mars 2023 19:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Það eru svo margir leikmenn sem þarf að losa frá Chelsea á undan Mount"
Jude Bellingham og Mason Mount
Jude Bellingham og Mason Mount
Mynd: EPA

Allt útlit er fyrir að Mason Mount yfirgefi Chelsea en þessi 24 ára gamli leikmaður á rúmt ár eftir af samningi sínum.


Það eru engar viðræður í gangi en Mount hefur verið orðaður við Manchester City, Manchester United og Liverpool.

Paul Merson sérfræðingur hjá Sky Sports gagnrýnir Todd Bohely fyrir að semja ekki við Mount.

„Þú losar þig ekki við bestu leikmennina þína. Það eru svo margir leikmenn sem þarf að losa frá Chelsea á undan Mount. Strákurinn kann að spila fótbolta, þetta eru slæm viðskipti hjá Chelsea, þeir eiga að gefa honum það sem hann vill," sagði Merson.

Hann segir að Liverpool geti orðið stórhættulegt ef Mount fer þangað.

„Ef Liverpool fær Mount og svo Jude Bellingam, sem gæti einnig farið til Liverpool, ertu með lið sem getur barist um titilinn. Af hverju myndiru vilja fórna því ef þú ert Chelsea? Af hverju viltu gera þá sterkari?" Sagði Merson.


Enski boltinn - Ræða Conte og Mitrovic ekkert gáfnaljós
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner