Fotbolti.net
20.04.21 - 21:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Böddi lagði upp fyrir Brand í öruggum sigri - Mikael lék í jafntefli

Böddi löpp

Böddi löpp

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Helsingborg vann í dag 4-1 sigur á Örgryte í sænsku B-deildinni. FHingarnir Böðvar Böðvarsson og Brandur Olsen voru í byrjunarliði Helsingborg.

Brandur lék leikinn og Böddi fyrstu 89 mínuturnar. Leikurinn var liður í 2. umferð deildarinnar.
Mínútu áður en Böddi fór af velli lagði hann upp fjórða markið fyrir Brand. Helsingborg er í 2. sæti deildarinnar, með fjögur stig eins og fjögur önnur lið.

Í dönsku Superliga gerði Midtjylland markalaust jafntefli við Randers í gær. Mikael Neville Anderson byrjaði á bekknum í gær en lék síðasta hálftímann eða svo hjá meisturunum.

Midtjylland er ríkjandi meistari og er nú með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.