Fotbolti.net
20.05.15 - 11:30
Eyþór Ernir Oddsson

EM U-21: Kane í enska 27 manna hópnum (Staðfest)

Gareth Southgate er þjálfari enska U-21 liðsins

Gareth Southgate er þjálfari enska U-21 liðsins

Canon

Mynd: Getty Images

Harry Kane, framherji Tottenham er meðal manna sem valdir hafa verið í enska landsliðshópinn fyrir EM U-21 árs landsliða, sem fer fram í Tékklandi í sumar.
Kane hefur farið hamförum á tímabilinu og skorað 30 mörk í heildina en óvíst var með þátttöku hans, þar sem Pochettino stjóri Tottenham er smeykur um leikjaálagið þar sem hann bankar einnig á dyr enska landsliðsins.

Aftur á móti velur Gareth Southgate, þjálfari enska liðsins að velja ekki Jack Wilshere, Raheem Sterling, Luke Shaw, Ross Barkley eða Alex Oxlade-Chamberlain.

Southgate hefur valið 27 manna hóp sem verður skorinn niður í 23 áður en þeir hefja undirbúning fyrir mótið þann 2. júní, en ólíklegt þykir að Kane verði meðal þeirra fjögurra sem fara ekki með.

„Hann hefur átt frábært tímabil fyrst og fremst og hefur verið stór hluti af okkar teymi og ég tel mikilvægt fyrir alla í hópnum að hann verði með.\"

„Þetta er frábært svið fyrir Harry Kane að sýna fóki hvað hann getur á landsliðssviðinu í stórmóti og gott fyrir hans þróun og gott fyrir hópinn að við getum tekið eins sterkan hóp og mögulegt,\"
segir Southgate.

Markverðir:
Bettinelli (Fulham), Bond (Watford), Butland (Stoke)

Varnarmenn:
Chambers (Arsenal), Dier (Tottenham), Garbutt (Everton), Gibson (Middlesbrough), Jenkinson (Arsenal), Keane (Burnley), Moore (Leicester City), Stones (Everton), Targett (Southampton)

Miðjumenn:
Carroll (Tottenham), Chalobah (Chelsea), Hughes (Derby County), Forster-Caskey (Brighton), Lingard (Manchester United), Loftus-Cheek (Chelsea), Pritchard (Tottenham), Redmond (Norwich City), Ward-Prowse (Southampton)

Framherjar:
Afobe (Wolves), Bamford (Chelsea), Berahino (West Bromwich Albion), Kane (Tottenham), Ings (Burnley), Woodrow (Fulham)

Heimild: Telegraph | SkySports

Harry Kane

Harry Kane

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.